
New York milliveggjakerfi
New York veggirnir geta umbreytt hvaða rými sem er, enda er hægt að raða þeim saman á ótalmarga vegu og samnýta með hurðum og öðrum lausnum New York kerfisins. Veggirnir eru annars vegar framleiddir úr heilu gleri með álímdum gluggarömmum og hins vegar úr smærri glereiningum sem raðað er saman í álramma.
Rammarnir eru úr dufthúðuðu áli í stöðluðum svörtum lit með mattri áferð (RAL 9005, gljástig 03). Glereiningar eru úr 6 mm hertu öryggisgleri að heilum glerveggjum undanskildum, en í þá er notað 8 mm öryggisgler. Staðalveggur er 500×720 mm að stærð en auk þess er hægt að sérpanta einingar sem hægt er að aðlaga að hvaða rými sem er. Gluggarammarnir eru 35 mm breiðir.
Sérsniðið að þínum þörfum
Sveigjanleiki er kjarninn í hönnun og framleiðslu New York kerfisins. Með einföldum hætti er hægt að aðlaga einingastærðir, liti og gler að séreinkennum og kröfum hvers verkefnis. Hér eru frekari upplýsingar um vinsælustu vörurnar:

DYFA New York skillevæg omkring Dragsholm Slot Bistro 'Spisehuset'. Fotograf Claus Starup.
Sérkenni New York kerfisins eru gæðahönnun í iðnaðarstíl, skilvirkar og sveigjanlegar lausnir
og framleiðsla eininga sem einfalt er að setja upp
VEGGEININGAR
Með New York veggeiningum frá DYFA getur þú skipulagt rýmið og skipt því niður eins og þér hentar best. Milliveggjakerfið er einstök innanhússhönnun í hreinum og einföldum iðnaðarstíl. Hægt er að sérpanta einingar sem henta kröfum hvers verkefnis, hvort sem þörf er á skilrúmum, hálfum veggjum eða veggjum sem ná frá gólfi til lofts. New York milliveggjakerfið gerir þér kleift að umbreyta rýmum og búa til ný án þess að fórna lýsingu, birtu eða ásýnd.
Veggirnir eru samsettir úr einingum sem raðað er saman í álramma. Fjölbreytt úrval eininga gefur kost á sérsniðnu útliti sem uppfyllir gæða- og útlitskröfur hvers verkefnis. Einfalt er að skipta einingunum út ef þörf er á eða til að breyta útliti og ásýnd í takt við kröfur hvers tíma.
Staðaleiningarnar eru úr hefðbundnu gleri en þær eru einnig fáanlegar í öðrum litum, efnum eða áferð. Þar má t.a.m. nefna speglagler, timbur eða hljóðeinangrandi plötur. Nánar
Kontakt DYFA
HEILIR GLERVEGGIR
Gefðu rýminu nýtt líf með glervegg frá DYFA. Heilir glerveggir umbreyta rýminu án þess að fórna náttúrulegri birtu. Líkt og nafnið gefur til kynna eru heilir glerveggir samsetttir með heilum glerjum. Þeir koma því með þynnsta rammanum sem við bjóðum upp á. Gluggarammar eru svo límdir á glerið til að ná fram New York útlitinu sem einkennir vörulínuna.
Þessi hönnun gerir okkur kleift að hanna veggi í ýmsum stærðum og fer þykkt glersins eftir stærð veggjarins hverju sinni. Heilir glerveggir eru einnig fáanlegir með 8,76mm /30 dB og 10,76mm/38dB hljóðeinangrandi gleri.
Hægt er að sérpanta gluggaramma í öllum litum í RAL litakortinu. Þeir eru einnig fáanlegir í öðrum litum, til dæmis hvítum, gráum og bláum. Hér getur þú kynnt þér litina.
Einnig er hægt að panta álímda gluggaramma á gler sem þegar er til staðar — með því móti er hægt að líka eftir hinu einkennandi New York útliti á einfaldan hátt. Álímdu gluggarammarnir eru pantaðir í metratali og eru fáanlegir í tveimur útfærslum. Nánar.
Kontakt DYFAINNBYGGÐIR GLUGGAR
New York gluggarnir eru einstök innanhússlausn sem tryggir birtu og viðheldur tengingu á milli herbergja í rými sem hefur verið skipt upp í smærri einingar.
Staðalvörur í New York kerfinu eru með svörtum álramma og glereiningum en auk þess er mögulegt að sérpanta úrval lita, efnis og áferðar. Nánar
Kontakt DYFASTURTUGLER
Þú setur einstakan svip á baðherbergið með sturtuvegg í New York stíl. New York sturtuveggir eru eingöngu framleiddir úr áli og gleri sem gerir þá afar hentuga til notkunar í votrýmum.
Sturtuglerin er hægt að nýta á fjölbreyttan hátt og einfalt er að laga þau að þeim innréttingum eða hönnun sem þegar er til staðar. Við mælum með heilum glerveggjum og álímdum gluggarömmum í votrými. Þannig er hægt að hafa álímda ramma á glerinu utanverðu, en snúa sléttu hliðinni inn að sturtunni eða því svæði sem kemur til með að blotna. Fyrir vikið er einfalt að skafa bleytu og raka af glerinu og halda því hreinu. Glerið er fest að innanverðu í votrýminu sem viðheldur heildaryfirbragði og ásýnd New York stílsins.
Stöðluð sturtugler eru með 8 mm hertu öryggisgleri. Við bjóðum einnig upp á svokallað „Clarvista gler“ með sérstakri verndarhimnu sem minnkar líkur á að glerið láti á sjá þrátt fyrir mikla notkun í hita og raka.
Hægt er að sérpanta gluggaramma í öllum litum í RAL litakortinu. Auk þess er hægt að velja um hefðbundið gler, litað gler eða matt gler. Nánar
Kontakt DYFA
Vinrum med termoglas, side partier og H1 rammedør
VÍNHERBERGI
Með New York veggjum og hurðum er einfalt að sérhanna glæsilegt vínherbergi sem tryggir bæði náttúrulega birtu og stílhreint yfirbragð. Sérkenni vínherbergja sem eru útbúin með New York kerfinu er að vínsafnið er líka sjáanlegt utan herbergisins.
Hvort sem vínherbergið er í kjallaranum, stofunni eða eldhúsinu er mögulegt að sérpanta 6,76 mm gler með UV vörn. Glerið ver gegn UV geislum og kemur þannig í veg fyrir óæskileg áhrif á innihald og útlit vínsafnsins.
New York kerfið viðheldur hitastigi og hentar því vel til notkunar í kældum vínherbergjum. Engu að síður þarf að hafa mörg atriði í huga í kældum rýmum og því fer hönnunin eftir eðli verkefnis hverju sinni.
Við höfum margra ára reynslu. Við getum ráðlagt þér og leiðbeint í átt að réttu lausninni.
Kontakt DYFAMöguleikunum eru engin takmörk sett
New York kerfið býður upp á ógrynni notkunar- og samsetningarmöguleika. Glerlausnir DYFA eru til dæmis notaðar til að stúka af
og skipuleggja rými, við hönnun fataherbergja, hönnun vínherbergja, í sturtugler og sem fasöður.
Hafðu samband. Í sameiningu finnum við réttu lausnina, hvert sem verkefnið er.