
New York einingakerfi
New York hurðirnar frá DYFA bjóða upp á ógrynni samsetningarmöguleika, enda má samræma þær og tengja við bæði veggi og glugga í New York vörulínunni. Hurðirnar eru ýmist fáanlegar sem hefðbundnar hurðir á lömum með sjálfstæðum gluggarömmum eða sem heilar glerhurðir með álímdum gluggarömmum.
Vörurnar eru framleiddar úr dufthúðuðu áli í stöðluðum svörtum lit með mattri áferð (RAL 9005, gljástig 03). Staðaleiningar eru framleiddar með 6 mm hertu öryggisgleri en í heila glerveggi og -hurðir er notað 8 mm öryggisgler. Staðaleining er 500×720 mm að stærð en auk þess er hægt að sérpanta einingar sem hægt er að aðlaga að hvaða rými sem er.
Sérsniðið að þínum þörfum
Sveigjanleiki er kjarninn í hönnun og framleiðslu New York kerfisins. Með einföldum hætti er hægt að aðlaga einingastærðir, liti og gler að séreinkennum og kröfum hvers verkefnis. Hér eru frekari upplýsingar um vinsælustu vörurnar:

P1 dobbelt pinoldør med stanggreb i eg og tilhørende skillevæg
Sérkenni New York kerfisins eru gæðahönnun í iðnaðarstíl, skilvirkar og sveigjanlegar lausnir
og framleiðsla eininga sem einfalt er að setja upp
SNÚNINGSHURÐIR
Mögulegt er að framleiða New York snúningshurðir í stórum stærðum. Þetta þýðir að í flestum rýmum geta snúningshurðirnar náð frá gólfi og til lofts. Snúningshurðirnar er einnig hægt að tengja við glerveggi sé þess óskað. Snúningshurðirnar eru með 90° opnun í báðar áttir, 180°opnun.. Þær eru festar í gólf og loft með snúningslömum.
Hámarksflatarmál snúningshurða (breidd x hæð): 4 m². Hámarksbreidd snúningshurða: 1.400 mm
Dæmi: Ein snúningshurð gæti t.d. verið 650 mm x 6.000 mm. Önnur gæti verið 1.400 mm x 2.500 mm. Svo lengi sem breidd fer ekki yfir 1.400 mm og heildarflatarmál ekki yfir 4 m² er mögulegt að sérsmíða hurðirnar í þeirri stærð sem óskar er eftir.
Snúningshurðir eru fáanlegar í þremur útfærslum og eru ýmist einfaldar eða tvöfaldar:
Með 95 mm ramma
Með 50 mm ramma
Heil glerhurð með 35 mm álímdum gluggarömmum
Snúningshurðir eru afhentar með hurðalokun í gólfstykki. Einnig er hægt að sérpanta fjölbreyttan aukabúnað á borð við handföng, þrýstiplötur, faldar lokanir í lofti, rúlluskrár, smekklása o.fl. Nánar
Kontakt DYFAHURÐIR Á LÖMUM
Hurðir á lömum eru fáanlegar í tveimur útfærslum:
- Hurð í ramma
- Heil glerhurð
Hurðirnar opnast í 180° í aðra átt. Lamafestingar eru í gólfi og lofti.
Hurðir í ramma eru þær hurðir sem komast sem næst hefðbundnum innihurðum. Hurðirnar eru settar saman úr glereiningum og festar í álramma. Hurðirnar er hægt að setja upp í flest stöðluð hurðarop í stað hefðbundinna innihurða. Eigi að skipta út núverandi hurð þarf að skoða lamasetningu og slúttjárn með tilliti til þess.
Heilar glerhurðir eru afhentar með fíngerðasta rammanum sem við bjóðum upp á. Þær eru gerðar úr heilu gleri með álumgjörð og álímdum gluggarömmum. Heilar glerhurðir eru annars vegar fáanlegar með 8 mm öryggisgleri og hins vegar með 10,76 mm hljóðeinangrandi gleri (vottuð hljóðdempun upp á 38 dB).
Hámarksstærð hurða á lömum: 1.100 mm x 2.400 mm (breidd x hæð).
Hurðir á lömum eru fáanlegar í þremur útfærslum og eru ýmist einfaldar eða tvöfaldar:
Í 95 mm ramma
Í 50 mm ramma
Heil glerhurð með 35 mm álímdum gluggarömmum
Hurðir á lömum eru afhentar í álramma og tilbúnar til uppsetningar. Heilar glerhurðir eða hurðir í 95 mm ramma koma með stöðluðu láshúsi en hurðir í 50 mm ramma eru einungis fáanlegar með segullæsingu. Einnig er hægt að sérpanta fjölbreyttan aukabúnað á borð við hurðarhúna, rúlluskrár, álþröskulda o.fl. Nánar
Kontakt DYFA New York Standarddøre brochureRENNIHURÐIR
Rennihurðirnar eru framleiddar í sama stíl og aðrar hurðir frá DYFA og eru fáanlegar í álramma eða sem heilar glerhurðir með álímdum gluggarömmum.
Rennihurðir eru afhentar með tvenns konar toppbrautum. Annars vegar eru þær fáanlegar með braut sem er innbyggð í loft sem gerir það að verkum að aðeins hurðarflekinn er sýnilegur. Hins vegar eru þær fáanlegar með sýnilegri braut sem veitir hurðinni grófara og meira afgerandi útlit sem minnir um margt á hlöðuhurð í sveitastíl.
Hámarksstærð rennihurða með 95 mm ramma: 1.200 mm x 2.400 mm ( breidd x hæð). Hámarksstærð annarra rennihurða: 1.100 mm x 2.400 mm (breidd x hæð).
Rennihurðir eru fáanlegar í sjö útfærslum:
Með 95 mm ramma
Með 95 mm ramma og sýnilegum brautum
Með 50 mm ramma
Með 50 mm ramma og sýnilegum brautum
Heil glerhurð með 35 mm álímdum gluggarömmum
Með topp- og botnramma
Með topp- og botnramma og sýnilegum brautum
Rennihurðir eru afhentar með földum toppbrautum, gólfbraut og án handfanga. Einnig er hægt að sérpanta fjölbreyttan aukabúnað á borð við hurðarhúna, ljúflokun, sýnilega toppbraut, rúlluskrár o.fl. Nánar
Kontakt DYFA
M4 - Helglas mobilvæg med snydesprosser, top- og bundramme
FELLIVEGGIR
Sveigjanlega felliveggjakerfið frá DYFA hentar vel til að stúka af eða skipta rýmum á borð við ráðstefnusali, fundarherbergi, kennslustofur, herbergi o.s.frv.
Felliveggur er frábrugðinn fellihurð að því leyti að hann býður upp á enn meiri sveigjanleika. Felliveggur er sjálfstæð eining sem er hengd upp eða fest í loft. Þar sem einingarnar eru afhentar hver í sínu lagi er mögulegt að raða þeim niður á þann hátt sem hentar hverju sinni.
Ólíkt fellihurðum eru felliveggir framleiddir með 10 mm öryggisgleri ásamt álímdum gluggarömmum. Með álímdum gluggarömmum er hægt að ráða stærð og ásýnd glereininganna og aðlaga að þörfum hverju sinni.
Ein tegund felliveggja er fáanleg:
Heill glerveggur með topp- og botnramma
Felliveggir eru afhentir með loft- og gólfbrautum. Auk þess er hægt að sérpanta veggina í ýmsum litum. Nánar
Kontakt DYFA